Look who´s talking!
Myndasöfn
21.05.2009 12:47:30 / italinn

Looong time no seeee

Hæhæ, erum búin að vera busy...já hver er ekki busy these days?  Nú er sá stutti....köllum hann bara Hákon, eins og hann var skírður, byrjaður í svefnprógrammi.  Erum að fara að hitta svefnráðgjafann aftur á morgun.  Er búin að vera að venja hann á rweglulegan svefn úti í vagni (tvo lengri lúra yfir daginn og tvo stutta að kveldi, nema við náum ekki enn stutta lúr nr.2 af því við erum smám saman að láta hann sofna fyrr á kvöldin.  Ég vissi ekkert um þessa 2ja lúra reglu og Hákon var bara orðinn svo yfir sig þreyttur að hann átti erfitt með að sofna snemma.  Við héldum honum líklegast of lengi vakandi yfir daginn áður fyrr.  Fyrri lúrinn slitnar í sundur í miðjunni.  Ég reyni að hafa hann 3 tíma en hann vaknar alltaf eftir 1 og hálfan, drekkur og fwer aftur í vagninn.  Allt þetta fór í rúst þegar ég ákvað að taka hann í heimsókn...en þá var hann bara búinn með fyrri helming lúrsins og ekki gat hann sofið annars staðar úti í vagni en heima hjá sér.  Ráðgjafinn sagði að vagninn ætti alltaf að snúa eins, sængin ætti að koma við báðar kinnar og alltaf sami cd diskurinn ætti að vera í gangi, Hákon má ekki sjá mig þegar ég vagga honum og ég á að gera suss-hljóð, standandi við hliðina á vagninum.

Það er voða gott veður, sól og fínerí, en hér uppi á svölum er búið að vera kalt rok síðustu 2 daga.  Daginn fyrir þá tvo daga gat ég setið þar úti í steikjandi hita og perlað dúk;)  Já, ég er mikið að dunda í perlinu þessa dagana og get ekki hætt.  Halli fór uppá Esju með vini sínum og ég dunda mér bara hér heima.  Konan sem býr fyrir neðan okkur heyrði í Hákoni í vagninum og heilsaði okkur.  Hún hafði hvorki heyrt í honum né séð hann frá því hann fæddist.  Síðan eru 4 mánuðir liðnir og 2 vikum betur. 

Það er þægilegt að vera komin með svona svefnrútínu með barnið, þá hefur maður aðeins frjálsar hendur á kvöldin.  Hann vildi hér áður fyrr mikið láta halda á sér, en verkefni vikunnar var að láta hann kvarta lengur í stólnum án þess að vera að taka hann upp, annars kemst hann uppá lagið með að reyna að stjórna öllum hér á heimilinu:D sá litli!!!!!!  Það má aldrei gerast!!!!!  Annars er hann mikið mikið yndiskrútt, alltaf brosandi um leið og hann sér mann og brosir voða sætt með augunum i leiðinni...algjör bræðingur!!!!  Gengur vel í ungbarnasundi og buslar mest af öllum.  Eltir dót með munninum þegar ég læt hann sigla á maganum sínum.  Fyndið að sjá tunguna svona út þegar maður blæs framan í hann og þegar hann kemur uppúr kafinu...bara yndislegt:D  Jæja þá er þetta orðið tveimur of langt hjá mér í dag...það er bara svo margt að frétta því ég hef ekki hripað neitt hérna niður (hripað...oh my hef aldrei notað þetta spekingsorð áður:D )
Ciiiaaaaooooo

» 15 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 13:23:28 / italinn

Þúsund þakkir!!!!

Þúsund þakkir til allra sem komu í skírnina, takk fyrir okkur:D  Frábær syngjandi froskurinn frá Agnesi, Gústa og Apríl Nótt.  Svo erum við Hákon litli búin að vígja nýju kerruna, þessa flottu grænu;)  Honum líður rosalega vel í henni.  Svo vel að hann vaknaði ekki alla leiðina fram og til baka þegar við fórum í Árbæinn sem var langt trip.  Við stöldruðum við í Rofabæ þar sem mamman (ég) fékk sér pepperóníbát og kók;)
Nú erum við mæðginin alein heima til 22:15 samfleytt því pabbinn þarf að fara á fund eftir vinnu.  Ég ætla að taka upp perludótið aftur eftir langt hlé og perla dúk því eg á svo rosalega mikið af perlum sem ég verð að nota!

Við opnuðum bankareikning fyrir Hákon litla og sá reikningur verður opnaður þegar hann verður 25 ára. Þá er ég 56 ára á fimmtugasta og sjöunda árinu....úff maður elleman jensen!!!!!!  fyrst þegar börnin koma þá eldist maður hraðar...maður eldist með börnunum meðan maður sér þau stækka HRATT!  Jæja, ég veit ekki hvað meir ég á að segja, hmmm æjá ég fór að sækja myndir af prinsinum litla í gær, heilar 2 filmur.  Af því ég er með svona gamaldags myndavél, gat ég ekki séð hvaða myndir heppnuðust best og svo voru sumar 2 alveg eins þannig að þær myndir sendi ég bráðum til hennar Danielu pennavinkonu;) eins og ég lofaði henni.  Bæ í bili.

» 14 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 15:55:26 / italinn

skírnin nálgast:)...

...og allir að deyja úr spenningi því þeim tekst ekki að veiða nafnið uppúr okkur Halla;)
Það er svo oft búið að vera að gera dyraat hjá okkur hérna í blokkinni.  Halli þaut fram í gær og heyrði að e-r hljóp upp á næstu hæð.  Hann þaut upp en sá ekki inn í hvaða íbúð var farið.  Það er þá e-r vitleysingur sem býr hérna í sama húsi og við sem hefur ekkert betra við tímann að gera.  Einn morguninn var hringt 3 sinnum á bjöllunni, en ég er hætt að svara þessu.  Svo eru það póstkassarnir niðri.  Svilkona mín hérna í næstu íbúð var búin að taka umslag úr sínu boxi og setja aftur umslagið í það en þegar hún kom til baka og ætlaði að taka umslagið með inn í íbúð sá hún að umslagið sneri baki í hana, en það var ekki þannig sem hún skildi við það.  Er sá hinn sami að skoða póstinn okkar allra? Eru fleiri en við Halli að lenda í dyraatinu?  Hmmm þarf Hercule Poirot að koma og rannsaka málið?
Halli var svo reiður í gær að hann sagðist ætla að $%##"&& manninn/konuna ef hann stendur e-n að verki.

» 15 hafa sagt sína skoðun

09.01.2009 18:27:10 / italinn

úff

það er sko farið að síga vel í.  Varla að ég geti gert yogaæfingar af sjálfsdáðum því ég get ekki verið í þessari set-stellingu...sem yogafólk er alltaf í í svona hugleiðslum ofl.  Reyndi áðan á dýnunni sem við keyptum einu sinni en ég er bara svo mikil um mig núna að mér varð illt strax og fékk krampa.  Já það koma stundum fyrirvaraverkir en ég ætla ekki að segja hér hvað er langt á milli þeirra þá stoppar ekki síminn.  Við suma segi ég: það kemur fyrir  eða neeeh, ekkert mikið að ráði.  Gáfulegt hjá mér að segja þetta hér en ég veit um suma/eina sem sjá ekki þetta blogg, you know what I mean, sem myndu hringja viðstöðulaust!  En þetta kemur bara þegar þetta kemur...við látum vita, don´t worry.  Pabbi verður langfyrstur að fá að vita það, hann á það mjög mikið skilið.  Ég hefði ekkert óskað mér heitara en að mamma mín gengi í gegnum þetta allt með mér.  Myndi vilja hafa hana hjá mér allan sólarhringinn, hún hafði svo yndislega nærveru alltaf.  Ég veit að sumir myndu segja: Hún ER hjá þér"  en það er bara ekki nóg því ég vil sjá hana halda á barninu og vera alltaf hér þar sem ég sé hana, en því miður er það aldrei í boði.  Það þarf ekki að segja mér að hún sé hjá mér því ég veit það alveg- vil bara sjá hana og vildi stundum að ég væri skyggn.  Við erum að fara í mat, en verst að það er bæði hangikjöt og hamborgarhryggur, sem bæði er mjög saltaður matur og ég öll í bjúg.  Ætla ré3tt að smakka og svo bara halda mig við meðlætið eins og um jólin.  Jæja nenni ekki að skrifa meir, er pirruð í dag- bara einn af þeim dögum. ciaaaoo

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.12.2008 14:07:58 / italinn

Fyrsti frídagur í ár plús mánuð;)

Þá er það fyrsti frídagurinn í orlofinu, en fyrst mun þessi mánuður líða og ég mun fá heil laun fyrir desember, því ég fór með vottorð í vinnuna á föstudaginn.  Ég var í skoðun í dag og talaði um depurð mína og kvíða.  Á það stundum til að fá skapsveiflur, pirring, depurð og kvíða.  Talaði um þetta allt við ljósmóðurina í morgun ásamt svefnleysi sem ég er að glíma við vegna bakverkja.  Það tekur e-ar klst að sofna.  Mér var sagt að ég mætti alveg taka tvær panodíl og gott ráð væri að vera með hitapoka við bakið áður en ég fer að sofa.  Hún sagðist ætla að hugsa vel um mig núna vegna þessarar depurðar.  Venjulega eru tekin þunglyndispróf á seinni tíma meðgöngu, en þá fær maður spurningalista og þau reikna út stigin.  Með mig, í þessari sorg, eru miklar líkur á fæðingarþunglyndi og þau munu fylgjast vel með mér.  Skapsveifliurnar hjá mér lýsa sér í svo miklum pirringi og þreytu að ég verð bara áhugalaus og þögul innan um sumt fólk.  Öðrum tekst að halda því niðri hjá mér og það er skemmtilega fólkið sem hefur húmor:)

Þið verðið bara að afsaka að þetta er e-ð sem ég ræð ekki við þessa dagana.  Það er búið að vera þannig.  Það hefur farið t.d. misvel og mis illa í mig þegar spurt er:" segirðu ekki bara ALLT GOTT"  Bara það getur stuðað mig, en það er ekki alltaf.  Ég á alveg mjög góða daga inn á milli.  Ég er ekki að leggjast í algjöra sjálfsvorkunn, en bara svo fólk viti, þá er ég ekki að kenna neinum um pirringinn í mér sem kemur upp, þetta er bara svona hjá mér.  Ætla að reyna lífga upp á allt saman í dag með því að skoða í barnabúðina Baby Sam og fara að kaupa einhverjar jólagjafir því það er ÚTBORGUNARDAGUR!!!!!!!

Buðum Agnesi, Gústa og þeirra 14 mánaða stelpukríli (algjörri dúllu!!! Ég smitaðist algjörlega!!!!! ) í mat síðasta laugardagskvöld og nú ætlum við að fara að hittast oftar, þetta gengur ekki svona til lengdar, maður hittir engan...allir of "uppteknir"  family and friends go first, then WORK.    Jæja, fyrst ég er búin að fá launin ætla ég að skrifa jólagjafalistann og fara síðan að þvo barnafötin sem við Halli höfum fengið að gjöf;)  Ciao ragazzi....talandi um CIAO þá ætla ég að rifja upp ítölsku!!!!  hugsunin mikla hefur ekki verið framkvæmd að fullu nema að ég er búin að skrifa ítalskar setningar á minnismiða og ætla að skrifa meira og senda email til Francescu kennara:D


» 15 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 12:15:41 / italinn

Bara þessi vika;)...

...og þá er ég komin í langþráð barneignafrí.  Bað bara um það sex vikum fyrir settan dag því ég er orðin mikil um mig og þreytt, með klemmda taug, alltaf andvaka langt fram á nótt.  Ætla bara að undirbúa "hreiður" og slaka á þangað til barnið kemur.  Áttum okkur samt ekkert alveg á þessu að það sé raunverulegt barn á leiðinni þó það séu spörk, búið að kaupa e-ð af fötum og verið að fara að kaupa þá hluti sem vantar eða fá að láni.  Fáum bara allt í einu barn í hendurnar sem hefur verið þarna inní mér allan þennan tíma...samt áttar maður sig EKKERT! hvað við erum að fara út í og allar breytingarnar sem verða á lífinu.

Var með listhóp í gær.  Tók fram alla jólaliti og græn og rauð blöð og lét þau teikna jólamyndir með vaxlitum.  Lét þau ekki mála því það tekur mikið á klemmda taug að vera rápandi á milli að bæta við litum og skipta um vatn ofl. ofl. sóðaskapur í kringum þetta líka, sérstaklega hjá sex ára krökkum!  Nei, ég sat með þeim í ró og næði og það hafði róandi áhrif á þau í öllum þessum látum í kringum okkur frá hinum krökkunum.  Já það hefur sko fjölgað krökkum á heimilinu þarna...það er fullt hús og mikil læti!  Ég er semsagt að fara í frí á mjög góðum tíma, slepp við mestu lætin;)  Ég var hryllilega þreytt í vinnunni í gær útaf svefnleysi og komin með höfuðverk.  Bað stráka að vera ekki þar sem ég var með listhóp (þetta er allt svo opið svæði) því það voru mikil læti í þeim.  Ein fór með þeim út í fótbolta og þar munaði sko miklu!  Það er rigningarsuddi núna en bara þægilegt hljóð í veðri.  Eitthvað af jólaseríunum eru dottnar í glugganum því við þurftum að nota double tape í stað drasls sem við keyptum.  Verðum að fá okkur svona sogskálar, þær eru bara frekar stórar, en sjást kannski ekki mikið þar sem þær eru glærar.  Er farin að hlusta á jólalög í útvarpinu án þess að vera komin í e-ð jólaskap...er ekki viss um að það komi neitt sérstakt jólaskap því þetta verða mjög breytt jól.  Mikið erfiði búið að ganga á og tvöföld sorg.  Sum jólalög eru svo sorgleg að ég þarf að skipta um stöð!  Jæja ég ætla að kaupa mér pastarétt á pastabarnum...nammmm, svo fer ég í vinnuna.  Vakna núna kl 11:10 vegna svefnleysis nóttina áður.  Það er bara fínt.  Hvenær á maður annars að sofa ef það er ekki hægt á nóttunni og varla á daginn?  Nú er þetta ofrðið frekar langt hjá mér, svo ég ætla að bruna í Hagkaup.  Ciao belli

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 17:20:03 / italinn

Trúið þið þessu?

Sú sem vinnur með mér og er búin að segja að ég sé með feitan rass á meðgöngu (bara alltaf að glápa á rassinn á mér? ) var með í umræðunni hvort ég gengi með strák eða stelpu.  Ein önnur er handviss um að það sé strákur útaf einhverjum kenningum með útlit á bumbu ofl. ofl. og ég segi að flestir í minni fjölskyldu giski á stelpu.  Segir þá ekki þessi með rassakommentið: Er það ekki bara AF ÞVÍ AÐ MAMMA ÞÍN ER DÁIN OG ÞAU VONAST EFTIR NÖFNU HENNAR????  aF ÞVÍ AÐ MAMMA MÍN ER DÁIN??????  Yfirkonan var í fríi þennan dag og þá notar þessi tækifærið til að koma með svona ógætileg komment!!!!  Það var nýlega einkaviðtal hjá stjóranum okkar og hún skrifaði niður allt sem ég hafði að kvarta útaf þessari rassakonu;)  Hún sagði: Já hún má sko passa sig á því hvað hún segir!  Endilega látið mig vita af öllu svona. Þú ert ekki sú eina sem lendir í henni.  Ég sagði: Af því að mamma mín er dáin? NEEEEI þeim finnst ég bara þessleg að ganga með stelpu!! 
Ég svara henni alveg með pirringi og þá er hún kjaftstopp og áttar sig....eða áttar sig vonandi.  Svo spurði hún hvað ég hafi þyngst mikið og bíður eftir því að geta sagt: Nei, það er of mikið!!!!  Ég naut þess að spyrja aðra um álit fyrir framan kellinguna og sú stelpa segir: Neeei, það er EKKERT of mikið.  Þá leið mér vel.  Þessi "feiti" rass er þá ekki svo þungur:D  Ætli það sé ekki bumban sjálf, sem kellingin þorir ekki að horfast í augu við vegna öfundar, sem spilar kannski með í þyngdinni.  Hvað um the boobs...ætli þau geri ekki eitthvað með grömmin líka?????  Nú veit hún að ég fer fljótlega í barneignafrí og hún hefur alveg komið með komment um það.  Hleður á mig verkefnum AF ÞVÍ að ég er að fara í "FRÍ" eins og það verði ekki næg vinna að hugsa um eitt stykki barn?

» 10 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 12:25:18 / italinn

Gonna be the hottest mother!!!!!

Jæja, þá er komin 31.vika í dag og foreldranámskeiðið byrjar í kvöld.  Fer í það beint eftir vinnu og þangað mun Halli mæta eftir vinnu.  Við ákváðum bara að hittast þar-the hottest parents in the world;)  Ég er aðeins búin að shjæna mig til í tilefni þess og verð í flottu svörtu peysunni sem sys gaf mér og svo mínum bestu leggings.  Málaði mig líka rétt áðan þannig að nú er ég bara tilbúin á "ballið" .  Ég hef heyrt sögur um svona námskeið, þar sem ljósmóðirin leikur hríðir!!!!!!  Með öllum tilheyrandi hljóðum.  Ég er svona rétt að vona að það gerist ekki á þessu námskeiði.  Fólk var farið að halda niðri hlátrinum eða roðna niður í óæðri endann:D  Ég myndi verða mjög vandræðaleg!!!!!!

Ég var í meðgöngunuddi í morgun, sem Halli pantaði fyrir mig óvænt;) og það var rosa næs.  Það var hægt að gera holu fyrir bumbuna en það var ekkert mjög þægilegt svo ég lagðist á hliðarnar og sat líka stundum meðan hún nuddaði.  Svæðið þar sem ég hef fengið klemmdu taugina var mjög aumt þannig að nuddið á því svæði gat verið vont á köflum og stundum vont/gott.

Ég fékk hugmynd á síðustu stundu með listhópinn minn í gær.  Það er til kassi sem er troðfullur af pappírsafgöngum í mism. litum þannig að ég lét þau bara rífa hann niður með höndunum, engin skæri í boði, og líma þétt saman á blað en með eitthvað myndefni í huga.  Þetta fannst þeim gaman og þetta var mjög flott hjá mörgum.  Það voru sumir sem lögðu kannski ekki alla sálina í þetta.  Ein vildi bara gefast upp strax og nýbyrjuð.  Hún komst upp með það síðast, en nú slapp hún ekki.  Ég sagði: Maður klárar það sem maður byrjar á og svo er það annaðhvort listhópur eða EKKI listhópur...þú getur ekki bara komið og farið eins og þér sýnist".  Þrátt fyrir þetta flýtti hún sér bara að gera EITTHVAÐ til að fylla út í og fékk að fara eftir það.  Ég vara hana við þessu næst.  Jæja, þá fer vinnutíminn að byrja.  Buon giorno tutti


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.11.2008 17:44:18 / italinn

30.vika,3.dagur

Já það styttist sko í 100% lífsbreytinguna-það er að koma baby fljótlega skilst mér:) sett þann 13.janúar 2009, á því nýja herrans ári8)  Það eru svona 5% líkur að börn fæðist á settum tíma, sagði ljósmóðirin sem tók sónarinn síðast.  Það getur liðið hálfur mánuður til eða frá og það getur líka liðið einn dagur til eða frá.  Fyrsta barnabarn þeirra tengdó er fætt 14.janúar og verður 5 ára næst.  Sjáum til hve margir dagar líða á milli afmælisdaga þeirra frændsystkina:)  Þetta verður fyrsta barnabarn pabba míns og annað barnabarn tengdóanna.
Ég var heima í dag og með hálsbólgu og ýmis einkenni.  Ég vakna verri en skána svo aðeins með deginum.  Var ekki nógu góð í vinnunni í gær þannig að ég var bara heima til að reyna að ná þessari "drullu" úr mér.  Ég hélt áfram að búa til afmælisgjöf hennar tengdó sem er 12.nóv.  Segi seinna hvað það er, bara til öryggis ef hún skyldi óvart rata inn á þessa síðu....mjööög ólíklegt samt þar sem hún er næstum aldrei í tölvum.  Þessi gjöf er búin að taka months and months, hours and hours!  Er stolt af árangrinum og ekki er mikið eftir.  Nú bíð ég eftir Dr.Phil þættinum sem kemur á eftir þessum %$#"! sjónvarpsmarkaði.  Hlýtur að ganga illa að selja þessar vörur fyrst þeir eru svona desperado!
Hmm veit ekki hvað ég á að segja meira. Förum í heimatilbúna pizzu hérna í næstu íbúð sem bróðir Halla býr í ásamt sinni unnustu.  Kannski tengdóarnir komi líka? Kæmi ekki á óvart.  Jæja, ég er frekar slöpp núna og ætla að leggjast upp í sófa.  Byrjum á foreldranámskeiði í næstu viku og í síðasta tímanum (þeim 3ðja) verður farið á fæðingardeildina að skoða aðstöðuna...my LOOORD!!!!!  nervous for that thing!!!

ciao ragazzi miei


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.10.2008 12:28:34 / italinn

Leikhús

Við Halli fórum í gær á leikritið Fólkið í blokkinni, mjög skemmtilegt, en það sem skyggði soldið á þetta voru þessi hrikalega óþægilegu sæti.  Þetta voru ekki þessi venjulegu leikhússæti heldur vorum við áhorfendur uppi á sjálfu stóra sviðinu sem snerist og þar voru venjulegir stólar...eða þeir allra lélegustu sem hægt var að finna.  Öxlin á mér var bakvið öxl ókunnugrar konu og svo koll af kolli.  Stólbakið var eins og rýtingur í bakið á okkur en við sátum á púðum, sem eftir hlé, ég skipti út og setti við bakið á mér.  Eftir leikritið var maður semsagt kominn með krampa í fætur líka.  Annars var þetta mjög gott leikrit, en bakverkurinn byrjaði strax.  Því miður voru ekki sætanúmer þannig að það var röð út að dyrum, en gott að við vorum bara tvö, þá var gott að finna 2 laus sæti inn á milli.  Annað með heilu familíurnar því aaaallt fyyyylltist.

Áður en við fórum í leikhús, komum við við hjá tengdó í gúllassúpu og gott brauð með pestói.  Þar voru önnur hjón í þeirra familíu í heimsókn.  Við höfum ekki séð þau síðan í Krítarferðinni.  Jæja, nú er Halli farinn að setja vetrardekk undir bílinn og það gerir hann á verkstæði pabba síns sem hefur alltaf geymt dekkin fyrir okkur.  Lúxus að eiga bifvélavirkja fyrir tengdó8)  Ég er búin að vera í góðu 4ra daga fríi vegna vetrarfrís í skólanum sem ég vinn;)  Lúxusfrí alveg og sofa út endalaust.  Það er alltaf að verða erfðara að sofna meðan bumban stækkar svona og brjóstsviði eykst+að stundum vakna ég með blóð á kodda, því þessu fylgja, þótt ótrúlegt sé, BLÓÐNASIR líka.  Aldrei datt mér það í hug, því ekki hef ég séð það skráð neinsstaðar í sögu Íslands!  Blóðnasir á meðgöngu!!!8|  en jæja, þá er komið að því að perla eina afmælisgjöf fyrir 12.nóv. n.k.  see yah ragazzi miei, vi voglio tanto bene, ho bisogno di abbrazzarvi!!!!! forte forte.

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 17:32:33 / italinn

misjafnir dagar:(

Er búin að vera frekar leið á köflum.  Það eru bara þessir misjöfnu dagar í sorgarferlinu held ég...nei ég held það ekki, ég VEIT það.  Ég hlakka ekki til jólanna og er búin að vera frekar neikvæð gagnvart þeim þar sem ég veit að þetta verða fyrstu sorgarjólin og MJÖG erfið.  Ég er búin að láta margt fara í taugarnar á mér, svo mikið að það rjúkandi sýður á mér en ég ætla ekki að nefna þá hluti hér.  Auðvitað koma ágætis tímar á milli, ég er ekkert endanlega lögst í þunglyndi og get stundum hugsað um eitthvað jákvætt í staðinn svona til huggunar.  Ég gæti sofið endalaust en það eru nottla meðgönguhormónarnir sem eru þar í gangi.  Ég keyrði Halla í vinnu kl 11 og reyndi að sofna aftur.  Það tókst ekki, ég sagði Halla það og þá sagði hann: Klukkan er líka orðin ellefu.  Ég sagði að ég þyrfti bara á meiri svefni að halda, þannig er þetta tímabil bara.  Ég er líkamlega þung á mér- svo mikið að ég er með mæði bara með því að labba milli herbergja og ganga upp tröppur.  Ég er samt í jóga og dugleg að mæta í það 2svar í viku.  Ef ég fer að grenja útaf furðulegustu hlutum þá huggar Halli mig orðalaust og skilur vel hvað er í gangi.  Þetta er skrítið tímabil sem er blanda af gleði og sorg...hvernig á maður að haga sér innan um fólk í þannig aðstæðum?  Ég er bara þannig að ég get ekkert verið að þykjast með því að setja upp eitthvað sparibros.  Þegar ég er pirruð þá leynir sér það ekki og öfugt.  Ég get vel farið að grenja ef eitthvað sem mig langar í út í búð er ekki til þar!!!

Jæja ég er að fara að sækja Halla í vinnuna og svo veit ég ekki hvað við gerum, vonandi bara að chilla.  Kannski fer ég bara að mála eða eitthvað.  Ciao gente


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.10.2008 17:43:51 / italinn

Er djöfulli reið núna!!!

:^):^):^):^):evil::evil::evil::evil::!::!::!::!::(:(:(:(:frown::frown::frown::frown:Þeir sem vilja ekki sjá blótsyrði andskotans núna, sleppi því að lesa þetta blogg dagsins!  Ég var í ágætis skapi á leið heim þar til allt í einu kemur stór jeppi á móti mér og fer næstum utan í mig á fullri ferð og ég tek heljar-andköf og vildi núna að ég hefði flautað af andskotans sálar kröftum þar sem hann hefði léttilega getað drepið mig!!!!!!  Ég æpti: Andskotans drulludelinn þinn, á að drepa mann?????  Ég er helvíti reið núna, hann væri ekki bara að drepa mig heldur ófætt barnið líka.  Ég grenjaði næstum úr bræði og það sýður á mér right now!!!!!!  Djöfulli brá mér!!!!!!  Eins gott að enginn er nálægt mér núna því skapið er sjóðbullandi-andskoti heitt!!!!!

Ég er alltaf með þennan þrýsting í nefinu sem nær alla leið upp á enni.  Ég fékk þessar svaka blóðnasir á þriðjudagskvöldinu, bara úr einni nös.  Ég er alltaf með þennan leiðindaþrýsting sem er hægt að líkja við kinnholubólgu...en ég veit ekkert hvort það sé eitthvað svoleiðis.  Hef heyrt að blóðnasir fylgi meðgöngu...hafði aldrei heyrt neitt þvíumlíkt áður.  Ég er svona mest í vinnunni á daginn en svo er það aðeins skárra heima í afslöppuninni mikilvægu.  Eins og ég sagði, þá er ég langt frá því að vera líkamlega létt á mér, nú stækkar bumban svo ört að það er orðin mikil fyrirferð og síðasti þriðjungur meðgöngunnar er að hefjast þar sem þreytan magnast aftur.  Meðgangan skiptist nefnilega í þrjú jafnlöng tímabil og miðtímabilið er auðveldast en nú er sá erfiðasti að koma.  Las það um 26,vikuna að nú fer að vera mikil stækkun á bumbunni og erfiðir tímar í ýmsu: koma sér fyrir, fyrir svefninn, vonlaust að liggja á bakinu; brjóstsviðinn er búinn að vera í e-n tíma og versnar nú aðeins, bakverkir, nokkrar pissuferðir á dag, vaxtarverkir halda alltaf áfram, mikil þreyta, erfitt skap (eins og þið sjáið ofarlega í blogginu þennan dag) ofl. ofl.

Ég fór í blóðprufu í morgun kl 8 og kom heim mögnuð af þreytu og snúsaði til kortér í eitt, rétt fyrir vinnutímann.  Það var alveg nauðsynlegt, en samt var ég orkulaus af þreytu!  Ég er að taka vítamín og lýsisperlur daglega, en fer aðeins að hægja á járntöflunum því ég fæ svo í magann af þeim...krampa í magann á hverjum degi.  Ég gæti sofið endalaust núna alveg eins og fyrsta þriðjung meðgöngu.  Það er sagt mjööög nauðsynlegt að ná svefni þegar tækifæri gefst.

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 19:20:28 / italinn

Mála og teikna

Ég byrjaði á einni teikningu sem var ekki fyrirfram ákveðin...bara byrjaði.  Hlustaði á Ipodinn góða.  Það er samt eitt.  Ég hefði þurft blýant til að byrja með ef ég ætlaði að gera mósaik. Annað væri vonlaust en vandamálið var það að ég nennti ekki fram til að ná í hann, búin að koma mér fyrir á sófanum, setja Ipodinn í gang ofl.  Kannski ég byrji á annarri teikningu og geymi þessa hálfnuðu aðeins?  Þá mun ég hafa blýant við hönd.
Ég ætla í jóga fyrst og svo heim að mála;)

Það var mánaðarlegur fundur rétt fyrir hádegi og ég er roooosaleeega þreytt eftir daginn.  Perlaði með 2 stelpum.  Sat á milli þeirra og leiðbeindi þeim báðum og ÞAÐ sem margir reyna að tala við mann í einu!!!!!!  Og svo er auðvitað greinilegt að ég er með 10 hendur eða þannig:(  Ég er gjörsamlega búin á því eftir þennan dag.  Svo held ég nottla enn að ég sé svo létt á mér, gleymi bumbunni sem þyngist með hverjum deginum og stend snöggt upp...fæ ég þá ekki bara þennan gríðarlega verk við að hreyfa mig of hratt.  Verð að fara mér hægar hér eftir.  Maður er engin "miss fitness" hérna á svona tímabili:D  yogakennarinn staglast á því að við eigum að láta dekra við okkur og í dag þurfti ég ekki að spyrja að því í vinnunni, því um leið og krakkarnir mættu og búið var að lesa upp, tóku 3 stelpur úr þriðja bekk upp á því að koma mér vel fyrir á sófanum með púða undir fótum og teppi og kalla þetta dekurdag!  Ein bjó til þar til gerða stundatöflu að ég muni fá dekurdag annanhvern þriðjudag.  Ekki léleg hugmynd ÞAÐ!  Jæja þá er það jogaclass.  Ciao fanciulli.

» 12 hafa sagt sína skoðun

04.10.2008 13:21:54 / italinn

chill

Ég var ekki bara að chilla, heldur líka að mála mósaicmyndirnar sem tókust svona líka lukkulega vel...eða byrjunin á því öllu.  Ég er að fara að gera sjö á einu bretti en ein af þeim er stærri.  Mun svo með æfingunni fara yfir í miklu stærri og þá þarf ég að ná í trönurnar og koma þeim fyrir hér heima.  Halli sagði VÁ með miklum tilþrifum í gær þannig að þetta lofar góðu í framtíðinni.  Er alveg búin að finna minn stíl sem er mjög skemmtilegur að framkvæma.  Var mjög ánægð með mynd sem ég gerði í gær og bara smá er eftir af.  Ég sótti Halla af strákakvöldi og við keyrðum 2 af þeim heim.  Þá vorum við komin heim klukkan hálfþrjú um nótt.  Þeir fóru að fá sér mexíkóskan mat til að byrja með og voru síðan sóttir úr Þjóðleikhússkjallaranum.
Er vægast sagt mjög þreytt eftir vikuna og fæ bakverki við að liggja á báðum hliðum (fyrst var það bara á hægri hlið) og svo er ég andstutt og með smá vott af brjóstsviða þegar ég ligg á bakinu.  Spörkin voru mikil í nótt þegar við Halli vorum að fara að sofa!  Barnið var kannski að njóta plássins sem það loksins hafði þegar ég fór úr mínum fyrstu óléttubuxum sem núna eru farnar að meiða mig soldið.  Ætla hér með að hætta að nota þær. Þær eru greinilega bara hannaðar fyrir 4 fyrstu mánuðina.  En sys, ástarþakkir fyrir fötin sem þú gafst mér.  Þessar buxur með teygjunni alveg yfir bumbuna voru HIMNASENDING!!!!! Fer trax með þær í styttingu eftir helgi.
Ég ætla að halda áfram að mála.  Þeir sem vilja sjá allt hitt sem ég hef gert, farið í blómabúðina Englar og Rósir í Hólagarði, því þar eru þær til sölu;)  Það er ekki víst að hún hafi enn komið þeim upp þar sem skortur er á plássi en hún ætlar að leysa það:D  Nú er þetta svo hvetjandi, þegar ég er búin að fara með fullt af myndum, að þá bara get ég ekki hætt að mála.  ciao,ciao bambini!

» 11 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 18:07:03 / italinn

I bambini biondi, biondi!!!

Var að fá svar frá Francescu.  Hún sagði að ítalskan mín væri enn veramente frábær;):D  rosalega er gott að heyra það að maður er nú ekki búin að missa þetta niður.  Ég var búin að segja henni frá litla ófædda barninu þá sagði hún: " Þetta verður þá ljóshært krútt.  Manstu hvað mig langaði mikið að eiga ljóshært barn og þú sagðir mér að koma bara til Íslands og ættleiða eitt slíkt? "  Já, ég man sko eftir að hafa sagt henni það:D  Hana langar svo rosalega mikið í eitt ljóshært.  Hún sagði eftir það að það væri ómögulegt fyrir hana að ganga með ljóshært barn.  Hún er kolsvarthærð með svört augu:D  Ég sagði henni að ég hafi nánast verið hvíthærð sem barn.  Hún spurði hvernig skapið hafi verið í mér á meðgöngunni og hvort mér sé flökurt, en það er lítið um það...nánast ekkert og er ég fer snögglega í vont skap er Halli ekki lengi að ná þeim einkennum úr mér með því að vera fyndinn:D  grínið svíkur ekki;)  Ég svara henni alltaf strax um hæl, spennt að fá annað svar til baka.

Ótrúlegt það sem mig dreymdi nýlega.  Það var að ég gat beint lampa að bumbunni og séð barnið þannig í móðurkviði:D:D:D:D  Það var með opin augun og brást við ljósinu með því að píra augun.  Vitleysan sem getur komið í mann að nóttu til:D stundum að degi til líka:D  Svo dreymdi mig í nótt að ljósmóðirin hafi viljað taka ljósmynd af bumbunni í stað þess að finna hjartsláttinn með tækinu:D  Alveg fyndið.  Jæja okkur er boðið í mat innan skammst,  ciao fanciulli!


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21